Um námskeiðið

"Ég vildi deyja. Þetta var verra en nokkurt þunglyndiskast sem ég hef lent í. Ég var í kulnun."

Ég leitaði mér hjálpar og vá hvað ég lærði mikið á leiðinni.
Nú er ég á betri stað og vil deila því sem ég lærði.
Sérstaklega sem foreldri þá triggera börnin svakalega og sæll hvað svefnleysið reynir á.

Tengirðu við eftirfarandi?

  1. Líkamleg eða andleg þreyta -eða bæði
  2. Skömm sem foreldri, að þau séu ekki eins gott foreldri og áður fyrr.
  3. Líður eins og allt sé yfirþyrmandi og komin/n/ð með leið á foreldrahlutverkinu.
  4. Andlega fjarlæg börnunum sínum


Á námskeiðinu munum við fara yfir dagskránna okkar, orkusugurnar í okkar lífi, mörk, meðvirkni, fortíðina, fyrirgefninguna (að fyrirgefa okkur sjálfum) og svo yfir í hamingjuhormón, betri sambönd, betri samskipti, gleðilista og þakklæti. Að lokum deili ég verkfærum sem hafa hjálpað mér.

Ég hvet þig til að prufa og finna út hvað hentar þér.


Bati er á þína ábyrgð.
Prufaðu þig áfram og finndu þig og þínar leiðir.
Þetta er magnað ferðalag


Kulnun eru skilaboð!
Eitthvað í lífinu þínu er ekki að virka.

Tími til að skoða hvað þarf að breyta og bæta.

Ég óska þér alls hins besta og vona að þetta hjálpi þér á þinni vegferð

Ef þú hefur einhverjar spurningar, ekki hika við að bjalla
[email protected]

kær kveðja,
Anna Claessen

ATH! Ég er markþjálfi....ekki sálfræðingur né læknir.
Ef þú ert með alvarleg einkenni, vinsamlegast leitaðu þér hjálpar.



Complete and Continue  
Discussion

0 comments